|
|||
2014-11-20 09:27:12 CET 2014-11-20 09:27:56 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Þriðja árshlutauppgjör 3F2014HELSTU NIÐURSTÖÐUR 9 MÁNUÐIR * Hagnaður eftir skatta var 18,2 ma. kr. á fyrstu 9 mánuðum ársins samanborið við 15,4 ma. kr. á sama tímabili 2013 * Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 13,8% samanborið við 13,4% á sama tímabili 2013, þrátt fyrir að eigið fé bankans hækkaði um 14% á milli ára úr 160 ma. kr. í 181 ma. kr. * Hreinar vaxtatekjur voru 20,6 ma. kr. (9M2013: 21,9 ma. kr.) * Hreinar þóknanatekjur voru 8,5 ma. kr. (9M2013: 7,6 ma. kr.) Aukninguna má að mestu rekja til viðskiptabankasviðs, markaða, eignastýringar og dótturfélaga. * Kostnaðarhlutfall bankans var 54,4% (9M2013: 58,4%); kostnaðaraðhald er farið að bera árangur. * Eiginfjárhlutfall var áfram sterkt eða 29,4% samanborið við 28,4% í lok árs 2013, og eiginfjárhlutfall A (Tier 1) var 26,3% (árslok 2013: 25,1%). * LPA hlutfallið var 7,0% (árslok 2013: 8,3%). Hlutfall vanskila umfram 90 daga var 3,1% (árslok 2013: 3,5%). * Heildareignir voru 931 ma. kr. (árslok 2013: 866 ma. kr.), sem er 7,5% aukning frá áramótum. ÞRIÐJI ÁRSFJÓRÐUNGUR * Hagnaður eftir skatta var 3,5 ma. kr. á 3. ársfjórðungi samanborið við 4,2 ma. kr. á sama tímabili 2013 * Arðsemi eigin fjár var 7,9% á fjórðungnum (3F2013: 10,6%). * Hreinar vaxtatekjur voru 7,1 ma. kr. á fjórðungnum (3F2013: 7,4 ma. kr.) Hreinn vaxtamunur var 3,1% (3F2013: 3,5%) sem er í takt við langtíma áætlanir bankans. * Hreinar þóknanatekjur voru 2,8 ma. kr. (3F2013: 2,5 ma. kr.) sem er 16% hækkun milli ára. * Heildar eignir voru 931 ma. kr. (júní 2014: 908 ma. kr.) og jukust um 3% á fjórðungnum. * Heildarinnlán jukust í 561 ma. kr. úr 543 ma. kr. í lok júní 2014 sem má rekja til eðlilegra sveiflna í innlánum frá viðskiptavinum og fjármálastofnunum. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:"Ég er ánægð með afkomuna á fyrstu 9 mánuðum ársins sem er í samræmi við áætlanir. Það verður þó áframhaldandi áskorun að styrkja grunnreksturinn með kostnaðaraðhaldi og auknum tekjuvexti. Við höfum lagt áherslu á að auka hagkvæmni í rekstri en lækkun á stjórnunarkostnaði var 6,4% milli ára. Útlán til viðskiptavina hafa aukist um 54 milljarða króna á þessu ári. Íslandsbanki hefur alltaf verið sterkur á sviði vöruþróunar á fjármálamarkaði og lagt áherslu á að bregðast við þörfum viðskiptavina á því sviði. Gott dæmi um þetta eru svokölluð fyrstukaupalán sem við kynntum á fjórðungnum en það eru fasteignalán á betri kjörum fyrir þá sem eru að kaupa húsnæði í fyrsta skipti. Við erum einnig stöðugt að þróa Íslandsbanka Appið með nýjum aðgerðum og sjáum 100% aukningu í fjölda færslna frá áramótum en samtals hafa 45 þúsund notendur hlaðið Appinu niður. Um 5.000 viðskiptavinir Íslandsbanka eiga rétt á leiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum sínum í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Leiðréttingin er fjármögnuð með sérstökum bankaskatti og gerir Íslandsbanki ráð fyrir að greiða um 2,4 milljarða króna í þann skatt á árinu. Mikilvægt er að þetta verði tímabundin skattheimta eins og kynnt hefur verið. Aukin skattheimta skekkir mjög samkeppnishæfni íslenskra banka við erlendar fjármálastofnanir í þjónustu við stærri fyrirtæki landsins." SÍMAFUNDUR Á ENSKU Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn. Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla, www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752. Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 3678. [HUG#1872942] |
|||
|