|
|||
2017-05-08 13:08:49 CEST 2017-05-08 13:08:49 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarReykjavíkurborg - Útboð RVK 53 1 og RVKN 35 1Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2017 að efna til útboðs í flokkum RVK 53 1 og RVKN 35 1 miðvikudaginn 10.maí. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð í hvorum skuldabréfaflokki bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. Heildarstærð RVK 53 1 fyrir þetta útboð nemur alls 19.570 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 4.570 m.kr. að nafnvirði. Heimild til lántöku á árinu 2017 er 3.012 m.kr. Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 15.maí 2017. Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki og Kvika fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 10. maí. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali: Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|