2011-09-01 11:10:48 CEST

2011-09-01 11:11:52 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Stefnis hf. vegna fyrstu sex mánaða ársins 2011


Stjórn Stefnis hf. staðfesti árshlutareikning félagsins fyrir fyrri árshelmings
2011 á stjórnarfundi félagsins þann 30. ágúst 2011. 

Helstu atriði úr reikningnum eru sem hér segir:

  -- Hagnaður Stefnis hf. eftir skatt ár fyrri árshelmingi ársins 2011 nam 311
     millj. kr. samanborið við 381 millj. kr. á fyrri árshelmingi 2010. Stefnir
     hf. er dótturfélag Arion banka hf. og er árshlutareikningur félagsins hluti
     af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans.
  -- Hreinar rekstrartekjur félagsins lækka um 3,57% samanborið við árið áður
     eða um 27 millj. kr.
  -- Rekstrargjöld hækka um 15,78% á milli ára eða um 47 millj. kr.
  -- Eigið fé félagsins í lok tímabils nam 2.025 millj. kr.
  -- Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er
     97,7% en samkvæmt lögum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Í lok árs
     2010 nam eiginfjárhlutfall Stefnis hf. 108%.
  -- Arðsemi eigin fjár er 34,4% fyrir fyrri árshelming 2011 samanborið við
     42,2% yfir árið 2010.
  -- Á aðalfundi félagsins 21. mars 2011 var samþykkt að greiða út arð til
     eigenda félagsins að upphæð 500 millj. kr.
  -- Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem rekur innlenda og
     alþjóðlega verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði fyrir
     einstaklinga og fagfjárfesta. Eignir í virkri stýringu í sjóðum Stefnis
     voru 299 milljarðar króna 30.6.2011, samanborið við 281 milljarða króna í
     árslok 2010.
  -- Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf, gaf út skuldabréf
     tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010. Sérstakur
     ársreikningur er gerður fyrir LFEST1 og er hann birtur sérstaklega í
     fréttakerfi NASDAQ OMX Iceland hf.
  -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Ernst & Young hf. í samræmi við
     alþjóðlega staðla um könnun árshlutareikninga.

Hægt er að nálgast árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins
2011 frá og með deginum í dag á heimasíðu félagsins www.stefnir.com og hjá
Stefni hf., Borgartúni 19, Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um ársreikning Stefnis hf. veitir Flóki Halldórsson,
framkvæmdastjóri félagsins, í síma 444 7464 og floki.halldorsson@stefnir.com.