2014-07-25 11:53:34 CEST

2014-07-25 11:54:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Fyrirtækjafréttir

Lokað hlutafjárútboð til starfsfólks og stjórnarmanna Nýherjasamstæðunnar


Á aðalfundi Nýherja hf. hinn 14. mars 2014 var samþykkt að heimila stjórn
félagsins að hækka hlutafé félagsins um allt að 150 milljónir hluta með sölu
nýrra hlutabréfa sbr. 41.gr. hlutafélagalaga. Á stjórnarfundi þann 25. júlí
2014 samþykkti stjórn félagsins að auka hlutafé félagsins um allt að 10
milljónir hluta til að selja til starfsmanna og stjórnarmanna
Nýherjasamstæðunnar í lokuðu útboði. Unnið er að útfærslu skilmála,
sölufyrirkomulagi og tímasetningum en gert er ráð fyrir því að útboðið verði á
þriðja ársfjórðungi 2014. Nánari upplýsingar verða sendar til kauphallar þegar
niðurstöður útboðsins liggja fyrir. 







Nánari upplýsingar:

Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, í síma +354 862 0310 og
Gunnar Petersen, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs í síma +354 825 9001