|
|||
2008-12-23 10:36:47 CET 2008-12-23 10:37:48 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga - Fyrirtækjafréttir- Grunnupplýsingar skuldabréfaÁhrif breytinga á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða á Lánasjóð sveitarfélaga. Í gær samþykkti Alþingi breytingar á lögum nr. 129/1997. Breyting var gerð á 36. gr sem snertir Lánasjóð sveitarfélaga þannig að 2. tölul. 1. mgr. orðast svo: "Í skuldabréfum og víxlum sveitarfélaga og Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. og skuldabréfum og víxlum sem tryggð eru með ábyrgð þessara aðila". Þar með breytist flokkun skuldabréfa lánasjóðsins frá því að flokkast undir 5 tölul. " Í skuldabréfum og víxlum banka, sparisjóða og annarra lánastofnana sem lúta eftirliti opinbers eftirlitsaðila" í 2 tölul. sem var áður " Í skuldabréfum bæjar- og sveitarfélaga". Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson Sími: (+354) 515 4916 e-mail: ottar@samband.is |
|||
|