|
|||
2014-06-05 15:54:38 CEST 2014-06-05 15:55:39 CEST REGULATED INFORMATION CCP hf. - FyrirtækjafréttirSkipulagsbreytingar hjá CCP hf.CCP hf tilkynnir í dag um skipulagsbreytingar í útgáfustarfsemi fyrirtækisins. Í kjölfar breytinganna eru lögð niður 49 störf hjá fyrirtækinu. Skipulagsbreytingarnar eru liður í áherslubreytingum CCP í vöruþróun, þar sem lögð er áhersla á þróun og útgáfu tölvuleikja fyrir einn og sama leikjaheiminn; EVE veröldina. Skipulagsbreytingarnar varða útgáfustarfsemi CCP og hafa ekki áhrif á leikjaþróun fyrirtækisins. Af þeim störfum sem lögð eru niður eru 27 þeirra í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík. CCP veitir öllum fráfarandi starfsmönnum stuðning og aðstoð við atvinnuleit. Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri: “Það er okkur þungbært að kveðja hæfileikaríkt starfsfólk okkar og vini. Fólk sem hefur lagt sitt af mörkum til fyrirtækisins og skilað mjög góðri vinnu við útgáfustarfsemi þess. En í ljósi breyttra aðstæðna, og stefnubreytinga í vöruþróun fyrirtækisins, er ég sannfærður um að þessar skipulagsbreytingar muni til lengri tíma litið styrkja og efla starfsemi CCP.” Frekari upplýsingar: Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP Netfang: eldar@ccpgames.com Sími 869 8179 |
|||
|