|
|||
2009-02-17 17:24:08 CET 2009-02-17 17:25:10 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAuglýsing um útboð ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226Föstudaginn 20. febrúar kl. 14:00 fer fram útboð í tveimur flokkum ríkisbréfa með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 10.000 milljónum króna samtals að nafnverði í RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226. Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðið verður með hollensku sölufyrirkomulagi sem þýðir að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 25. febrúar 2009. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: Flokkur RIKB 13 0517 Lokagjalddagi 17.5.2013 Útistandandi fjárhæð 33.966 m.kr. Lánstími 4,3 ár Flokkur RIKB 19 0226 Lokagjalddagi 26.2.2019 Útistandandi fjárhæð 44.669 m.kr. Lánstími 10 ár Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn f.h. ríkissjóðs bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24. febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 25. febrúar 2009. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|