2017-12-04 09:30:00 CET

2017-12-04 09:30:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup VÍS á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


             
Í 48. viku 2017 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 3.119.529 eigin hluti fyrir kr. 37.091.200 eins og hér segir:  
           
Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir VÍS eftir viðskipti  
27.11.2017 14:26 1.039.843 11,92 12.394.929 13.082.009  
28.11.2017 14:52 1.039.843 11,90 12.374.132 14.121.852  
30.11.2017 09:39 1.039.843 11,85 12.322.140 15.161.695  
             
Samtals   3.119.529   37.091.200    
           
           
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 18. september 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 15. september 2017.  
VÍS hefur nú keypt samtals 15.161.695 hluti í félaginu sem samsvarar 27,57% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 173.464.267. VÍS á nú samtals 0,68% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.223.497.541.  
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Heimildin gildir fram að aðalfundi félagsins 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660 5105.