2011-12-20 17:57:40 CET

2011-12-20 17:58:41 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sveitarfélagið Álftanes - Fyrirtækjafréttir

Óundirrituð drög að samkomulagi við Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda og Sameinaða lífeyrissjóðinn um uppgjör skulda sveitarfélagsins


Bæjarstjórn Álftaness, kt. 440169-6869, Bjarnastöðum, 225, Álftanesi, birtir á
fundi sínum, þann 20.12.2011, kl. 16:30, óundirrituð drög að samkomulagi við
Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, kt. 450181-0489, Borgartúni 29, Reykjavík, og
Sameinaða lífeyrissjóðinn, kt. 620492-2809, Borgartúni 30, Reykjavík, um
uppgjör skulda sveitarfélagsins við lífeyrissjóðina. 

Samkomulagið varðar útgáfu skráðra skuldabréfa sveitarfélagsins en um er að
ræða skuldir samkvæmt samtals tveim skuldabréfum í skráðri útgáfu skuldabréfa
sveitarfélagsins sem Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda er eigandi af og tólf
skuldabréfum í skráðri útgáfu skuldabréfa sveitarfélagsins sem Sameinaði
lífeyrissjóðurinn er eigandi að. 

Í samræmi við aðra kröfuhafa sveitarfélagsins munu nefndir lífeyrissjóðir,
samkvæmt drögum samkomulagsins, fella niður 32% af ofangreindum skuldum
sveitarfélagsins við lífeyrissjóðina. 

Það er forsenda og ákvörðunarástæða lífeyrissjóðanna fyrir aðkomu sinni, að í
fyrsta lagi að aðrir kröfuhafar sveitarfélagsins gangi til samninga við
sveitarfélagið um niðurfærslu og skuldauppgjör krafna / skuldbindinga á hendur
sveitarfélaginu með sambærilegum hætti og í öðru lagi að núverandi
sameiningaviðræður leiði til sameiningar. 



Pálmi Þór Mássonbæjarstjóri