|
|||
2012-11-27 16:01:12 CET 2012-11-27 16:02:13 CET Eimskipafélag Íslands hf. - FjárhagsdagatalEimskipafélag Íslands hf. birtir afkomu þriðja ársfjórðungs 2012 – kynningarfundur 30. nóvember 2012Eimskipafélag Íslands hf. birtir afkomu þriðja ársfjórðungs 2012 fimmtudaginn 29. nóvember 2012. Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem kynntur verður árshlutareikningur samstæðu félagsins fyrir þriðja ársfjórðung 2012. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 30. nóvember 2012 í höfuðstöðvum félagsins, Korngörðum 2, Reykjavík, og hefst kl. 8:30. Vakin er athygli á breyttri tímasetningu fundarins. Boðið verður uppá morgunverð á fundinum. Gylfi Sigfússon, forstjóri, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna afkomu félagsins. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is. |
|||
|