|
|||
![]() |
|||
2015-03-02 09:01:22 CET 2015-03-02 09:01:47 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Gildistími endurkaupaáætlunar Fjarskipta hf. liðinnGildistími endurkaupaáætlunar Fjarskipta hf. rann út þann 28. febrúar síðastliðinn. Við lok gildistíma áætlunarinnar á félagið 4.965.110 eigin hluti eða sem nemur 1,46% af útgefnum hlutum í félaginu (sbr. síðustu tilkynningu Fjarskipta til Kauphallar Íslands, um kaup á eigin bréfum, dags. 9. febrúar 2015). Tilkynnt var um framkvæmd endurkaupaáætlunar Fjarskipta hf. með tilkynningu til Kauphallar Íslands hf. þann 20. ágúst 2014. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 9.400.000 hlutum eða sem nemur 2,8% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin gilti til 28. febrúar 2015 nema ef kaupum samkvæmt henni yrði lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitir "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Framhald endurkaupa félagsins verður ákveðið í kjölfar aðalfundar þess, sem boðaður hefur verið þann 19. mars nk., en tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta liggur fyrir fundinum. Frekari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#1898538] |
|||
|