|
|||
2009-05-20 11:54:31 CEST 2009-05-20 11:55:40 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Marel Food Systems hf. - FyrirtækjafréttirMarel Food Systems hefur tryggt langtímafjármögnun að upphæð 170 milljónir evraMarel Food Systems hefur endurgreitt að fullu skuldabréfaflokk (MARL 09 1) sem skráður er í Kauphöllinni með gjalddaga í dag, 20. maí 2009. Meðallíftími skulda er rúmlega fjögur ár og eru gjalddagar á tímabilinu nóvember 2011 til maí 2017. • Nýr skuldabréfaflokkur að upphæð 3,6 milljarðar króna, sem samsvarar 21 milljónum evra, hefur verið gefinn út með gjalddaga í nóvember 2011. • Íslandsbanki, NBI og Nýja-Kaupþing hafa veitt sambankalán að upphæð 116 milljónum evra. • Allir afleiðusamningar hafa verið gerðir upp að fullu og Glitnir hefur veitt lán til fimm ára að upphæð 34 milljónir evra. • Meðal vaxtaálag lána samstæðunnar hefur breyst á einu ári úr Libor/Reibor + 300 bps í Libor/Reibor +450 bps á sama tíma og grunnvextir (Libor/Reibor) hafa lækkað umtalsvert. Theo Hoen, forstjóri Marel Food Systems: „Við erum þakklát því trausti sem lánadrottnar okkar hafa sýnt okkur. Þeir deila þeirri skoðun okkar að langtímahorfur í rekstri séu góðar. Eftir að hafa tryggt stöðuleika í fjármögnun getum við nú einbeitt okkur að daglegum rekstri sem mun gera okkur kleift að ná markmiðum okkar um rekstrarhagnað (EBIT) uppá 10-12% af sölu frá og með árinu 2010.“ Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marel Food Systems: „Íslensku bankarnir sýndu styrk sinn með því að taka höndum saman um að tryggja langtímafjármögnun Marel Food Systems. Við erum jafnframt mjög ánægð með það traust sem lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar sem tóku þátt í skuldabréfaútboðinu félagsins hafa sýnt okkur. Að auki veitti hópur banka í Vestur Evrópu undir forystu Rabobank okkur langtímalán árið 2008 með gjalddaga árin 2016 og 2017.“ Lýsing á skuldabréfi MARL 09 1 • Útgefið nafnverð; 3.600 milljónir króna í einnar milljóna króna einingum. • Vaxtagreiðslur á 6 mánaða fresti, fyrst 1 .nóvember 2009, með eingreiðslu höfuðstóls 1. nóvember 2011. • Vaxtakjör eru Reibor + 500 bps. • Skuldabréfin eru uppgreiðanleg hvenær sem er. • Skilyrði er að stefna og starfssemi Marel breytist ekki; yfir 75% af veltu sé tengt þjónustu við matvælaiðnað. • Marel skuldbindur sig til þess að ráðast ekki í yfirtökur eða meiriháttar fjárfestingar sem nema EUR 12.000.000 eða hærri fjárhæð þannig að lánsfjármögnun vegna slíkra fjárfestinga væri á gjalddaga á undan gjalddaga skuldabréfs. • Sérstök skilyrði: Marel skuldbindur sig til að veðsetja ekki eignir félagsins umfram það sem liggur fyrir við útgáfu þessa skuldabréfs, nema gegn samþykki 2/3 skuldabréfaeigenda í skuldabréfaflokki þessum. Taki hluthafar á hluthafafundi útgefanda ákvörðun um arður verði greiddur til hluthafa áður en útgefandi hefur greitt upp kröfu samkvæmt skuldabréfaflokki þessum eða boðist til þess leiðir það til gjaldfellingar á skuldabréfinu. |
|||
|