|
|||
2013-03-22 17:25:29 CET 2013-03-22 17:26:00 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Víxlar gefnir út á Nasdaq OMX IcelandÍslandsbanki fyrstur fjármálafyrirtækja til að ljúka víxlaútboði. Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 3 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1.500.000.000 krónur að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 3 mánaða víxillinn var boðinn út á 6,15% flötum vöxtum (verð: 98,4692) og 6 mánaða víxillinn á 6,30% flötum vöxtum (verð: 96,9133). Umframeftirspurn var eftir 3 mánaða víxlunum og bárust alls tilboð að fjárhæð 2.740.000.000 krónur að nafnvirði. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.500.000.000 krónur að nafnvirði. Umframeftirspurn var einnig eftir 6 mánaða víxlunum og bárust alls tilboð að fjárhæð 1.550.000.000. Tilboðum var tekið í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.500.000.000 krónur að nafnvirði. Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er á töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 5. apríl næstkomandi en í kjölfarið verður Íslandsbanki fyrsta fjármálafyrirtækið til að gefa út víxla í íslensku kauphöllinni síðan á haustmánuðum 2008. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 3678. [HUG#1687682] |
|||
|