|
|||
2017-03-22 19:48:54 CET 2017-03-22 19:48:54 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2017Aðalfundur Landsbankans hf. vegna ársins 2016 fór fram í Hörpu 22. mars. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf. Fundurinn samþykkti tillögu um að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2016 sem nemur 0,55 krónum á hlut, eða um 13 milljörðum króna sem samsvarar um 78% af hagnaði ársins, sem verði greiddur út í lok mars. Einnig samþykkti fundurinn tillögu um sérstaka arðgreiðslu sem nemur 0,50 krónum á hlut, eða um 11,8 milljörðum króna, og verði arðgreiðslan innt af hendi 20. september 2017. Samanlagðar arðgreiðslur Landsbankans á árinu 2017 munu því nema um 24,8 milljörðum króna. Á fundinum var greint frá nýrri arðgreiðslustefnu sem bankaráð samþykkti 7. mars sl. Í stefnunni kemur fram að Landsbankinn stefnir að því að reglulegar arðgreiðslur til hluthafa verði að jafnaði 60-80% af hagnaði fyrra árs. Í samræmi við fjármögnunarstefnu bankans er einnig stefnt að sérstökum arðgreiðslum til þess að auka hagkvæmni í fjármagnsskipan bankans. Við ákvörðun um fjárhæð arðgreiðslna verði tryggt að bankinn uppfylli lögbundnar kröfur á hverjum tíma og viðhaldi sterkri fjárhagsstöðu. Þannig verði tekið mið af áhættu í innra og ytra umhverfi, vaxtarhorfum og að bankinn viðhaldi til framtíðar traustri eigin- og lausafjárstöðu. Eftirtalin voru kjörin aðalmenn í bankaráð Landsbankans: * Berglind Svavarsdóttir * Einar Þór Bjarnason * Helga Björk Eiríksdóttir * Hersir Sigurgeirsson * Jón Guðmann Pétursson * Magnús Pétursson * Sigríður Benediktsdóttir Helga Björk Eiríksdóttir var kjörin formaður bankaráðs. Eftirtalin voru kjörin varamenn í bankaráð: * Ásta Dís Óladóttir * Samúel Guðmundsson Aðalfundur samþykkti óbreytta starfskjarastefnu fyrir Landsbankann. Þá var samþykkt tillaga um að þóknun til bankaráðsmanna verði 400.000 kr. á mánuði, þóknun til stjórnarformanns verði 700.000 kr. á mánuði og þóknun til varaformanns verði 500.000 kr. Því til viðbótar skuli greiða bankaráðsmönnum 200.000 kr. á mánuði fyrir þátttöku í starfi undirnefnda bankaráðs en auk þess fái formenn undirnefnda bankaráðs greiddar 25.000 kr. á mánuði. Þóknun til varamanns í bankaráði verði 200.000 kr. fyrir hvern fund í bankaráði eða fund með Fjármálaeftirlitinu um hæfismat en þó aldrei hærri en þóknun aðalmanns innan hvers mánaðar. Greiðsla til hvers varamanns skal nema að lágmarki 400.000 kr. á ári. Á fundinum var samþykkt heimild þess efnis að Landsbankinn eignist eigin hluti allt að 10% af nafnverði hlutafjár. Lægsta og hæsta fjárhæð sem Landsbankinn má reiða fram sem endurgjald fyrir hvern hlut skal vera bókfært virði hvers hlutar, þ.e. samsvara hlutfalli á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár, samkvæmt síðasta birta ársuppgjöri eða árshlutauppgjöri áður en kaup á eigin hlutum fara fram. Heimild þessi gildir fram að aðalfundi Landsbankans árið 2018. Ráðstöfun Landsbankans á eigin hlutum sem keyptir verða á grundvelli þessarar heimildar er háð samþykki hluthafafundar. Nánari upplýsingar veita: Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 / 899 3745 Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310 [] |
|||
|