|
|||
2017-03-24 13:00:01 CET 2017-03-24 13:00:01 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLánasjóður sveitarfélaga – Undirritun AðalmiðlarasamningaLánasjóður sveitarfélaga ohf. hefur gengið frá samningum við aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokkum LSS150224 og LSS150434. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá 26. mars 2017 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með skuldabréf Lánasjóðsins". Þær eru: Arion banki hf, Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf. og Kvika banki hf. Helstu atriði samningsins eru: -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum skuldabréfa lánasjóðsins að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði. -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem lánasjóðurinn veitir. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir LSS150224 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 30 m.kr. að nafnvirði í Nasdaq Iceland kauphöllina fyrir opnun markaðar. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir LSS150434 og setur fram kaup- og sölutilboð að nafnvirði 40 m.kr. að lágmarki í Nasdaq Iceland kauphöllina fyrir opnun markaðar. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans fari ekki yfir 1% -- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 200 m.kr. að nafnvirði með þá flokka lánasjóðsins sem viðskiptavakt er með er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. -- Samningarnir gilda frá 26. mars 2017 til 26. mars 2018. Nánari upplýsingar veitir: Örvar Þór Ólafsson Sími: 515 4947 Netfang: orvar@lanasjodur.is |
|||
|