|
|||
2014-05-22 16:09:28 CEST 2014-05-22 16:10:29 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirAðalmiðlarasamningar og viðskiptavakt vegna skuldabréfaflokka RVK 09 1 og RVK 19 1Reykjavíkurborg endurnýjar samninga við Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, MP banka, og Straum fjárfestingarbanka um viðskiptavakt með skuldabréf Þann 22. maí 2014 samþykkti borgarráð endurnýjaða samninga um viðskiptavakt á skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar í Kauphöll, þ.e. RVK 09 1 og RVK 19 1. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Reykjavíkurborgar að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá og með 24. maí 2014 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: „Aðalmiðlara með skuldabréf Reykjavíkurborgar“. Þær eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., MP banki hf., og Straumur fjárfestingarbanki hf. Helstu atriði samningsins eru: -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Reykjavikurborgar. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að leggja fram tilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði. -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Reykjavíkurborg veitir. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 09 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 19 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 20 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar. -- Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal aldrei vera meiri en 1%. -- Viðskiptavaki skal endurnýja tilboð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið. -- Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 150 m.kr. að nafnvirði með RVK 09 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. -- Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 60 m.kr. að nafnvirði með RVK 19 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. Viðskiptavakt Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Landsbanka hf., MP banka hf., Straums fjárfestingarbanka hf. gildir frá og með 24. maí 2014 til 24.maí 2015. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|