2015-02-06 12:45:00 CET

2015-02-06 12:45:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 17 0206


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 17 0206 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 17 0206:

Alls bárust 15 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.280 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 1.630 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,538 (5,25%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 10.
febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 11. febrúar 2015.