2015-07-22 10:39:23 CEST

2015-07-22 10:40:26 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Ársreikningur

CORRECTION: Góð afkoma hjá OR á fyrsta ársfjórðungi 2015


Reykjavík, 2015-07-22 10:39 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Ath.: Bætt hefur verið við
enskri útgáfu skýrslu um fjár- og áhættustýringu OR 2014. Íslensk frétt er
óbreytt frá upphaflegri útgáfu. 

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) skilaði 3,3 milljarða króna hagnaði á fyrsta
fjórðungi ársins 2015 og eiginfjárhlutfall hefur styrkst frá áramótum. Mikill
árangur hefur náðst í fjár- og áhættustýringu í rekstri OR og fyrirtækið gefur
út í dag skýrslu um markmið í málaflokknum, hvað áunnist hefur og að hverju er
unnið. 

Árshlutareikningur samstæðu OR F1 2015 var samþykktur af stjórn í dag. Hann er
gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34 um
árshlutareikninga. Vegna uppskiptingar OR í upphafi árs 2014 var ekki gerður
árshlutareikningur fyrir F1 2014. Því er samanburður við fyrra ár ekki gerður í
þessum árshlutareikningi. 

Stöðug afkoma og rekstur á Plani

Með aukinni festu í rekstrarumhverfi OR, aðhaldi í rekstrinum sjálfum og bættri
áhættustýringu hafa tekjur og gjöld fyrirtækisins orðið fyrirsjáanlegri og
afkoman traustari. Sú áætlun sem eigendur OR og stjórn fyrirtækisins hleyptu af
stokkunum 2011, Planið, hefur gengið eftir og gott betur. Það hefur skilað sér
í hærra eiginfjárhlutfalli, sem var 34,6% í lok uppgjörstímabilsins, 31. mars
2015. 

Rétt er að benda á að afkoma OR er gjarna best á fyrsta fjórðungi árs. Það á
trúlega einnig við í ár þar sem framkvæmdakostnaður er síður kominn fram vegna
erfiðs tíðarfars í vetur og vor. 

Stakkaskipti í fjár- og áhættustýringu

Mikil umskipti hafa orðið í fjár- og áhættustýringu OR síðustu ár og í dag er
gefin út skýrsla um stöðu þeirra mála hjá fyrirtækinu. Markmið útgáfunnar er að
auka gegnsæi í þessum mikilvæga þætti í starfi fyrirtækisins og að veita
upplýsingar sem eflt geta faglega umræðu um hann. Skýrslan er miðuð við árslok
2014. Í henni sést hvernig OR hefur mætt þeirri gagnrýni sem fram kom á fjár-
og áhættustýringu fyrirtækisins í skýrslu úttektarnefndar eigenda OR, sem út
kom haustið 2012. 


         Nánari upplýsingar:
         Ingvar Stefánsson
         framkvæmdastjóri fjármála OR
         516 6000