2016-03-23 16:05:04 CET

2016-03-23 16:05:04 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Garðabær - Fyrirtækjafréttir

Ný skuldabréfaútgáfa Garðbæjar


Garðabær fyrirhugar útgáfu nýrra verðtryggðra skuldabréfa til 15 ára að fjárhæð
allt að einum milljarði króna. Arion banki mun hafa umsjón með útboði á
skuldabréfunum og mun fyrir hönd Garðabæjar kynna það fyrir hugsanlegum
fjárfestum. 

Útboðið er áformað mánudaginn 4. apríl næstkomandi að því gefnu að
markaðsaðstæður verði útgefanda hagstæðar. Gert er ráð fyrir að niðurstöður
útboðsins verði tilkynntar 5. apríl með fyrirvara um að bæjarstjórn samþykki
hana þann 7. apríl. 

Fyrirhuguð útgáfa skuldabréfa er til að mæta áætluðum fjárfestingum Garðabæjar
á árinu 2016, sem samkvæmt fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að verði 1.238
milljónir króna. Þar af eru 400 m.kr. áætlaðar vegna sundlaugar í Ásgarði og
hönnunar knatthúss, 335 m.kr. til gatnagerðar og 243 m.kr. til ýmissa bygginga.