2012-11-19 16:26:00 CET

2012-11-20 16:30:39 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingar

Lýsing/tilkynning vegna birtingar 19. nóvember 2012


Fyrirvari vegna birtingar lýsingar dagsettri 19. nóvember 2012

Lýsing Fjarskipta hf., dags. 19. nóvember 2012, sjá viðhengi, varðar almennt
útboð á hlutum í Fjarskipti hf. og töku allra útgefinna hluta í Fjarskiptum hf.
til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Hvoru tveggja fer fram í
samræmi við íslensk lög og reglugerðir, þar á meðal lög nr. 108/2007 um
verðbréfaviðskipti og reglugerð nr. 243/2006 um gildistöku reglugerðar
framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og
-ráðsins 2003/71/EB, sem hefur verið innleidd í íslensk lög í samræmi við
ákvæði EES samningsins. Lýsingin hefur verið yfirfarin og staðfest af
Fjármálaeftirlitinu. 
 
 
 
Útboð hlutafjár í Fjarskiptum hf. fer fram í tveimur hlutum, lokuðum hluta og
opnum hluta. Lokaði hluti útboðsins fer fram frá kl. 09:00 til kl. 16:00 þann
3. desember 2012. Opni hluti útboðsins fer fram frá kl. 10:00 þann 4. desember
til kl. 16:00 þann 6. desember 2012. Í opna hluta útboðsins verður öllum
fjárfestum sem hafa yfir að ráða íslenskri kennitölu og eru fjárráða, í
skilningi lögræðislaga nr. 71/1997, gefinn kostur á að skrá sig fyrir hlutum og
skal hver áskrift vera að lágmarksfjárhæð 50.000 kr. að kaupverði. Öllum
áskriftum í opna hluta útboðsins skal skilað á sérstökum rafrænum áskriftarvef
Íslandsbanka sem aðgengilegur verður fjárfestum á vef Íslandsbanka
www.islandsbanki.is. 
 
 
 
Hlutirnir eru einungis boðnir til sölu á Íslandi og eru ekki boðnir til sölu í
lögsagnarumdæmum þar sem slíkt útboð myndi krefjast aukinnar skráningar umfram
þá lýsingu sem gefin er út og staðfest af íslenskum eftirlitsaðilum í tengslum
við útboðið. 
 
 
 
Lýsingin er gefin út á íslensku, bæði á rafrænu og prentuðu formi. Lýsingin
samanstendur af þremur aðskildum skjölum; útgefandalýsingu, verðbréfalýsingu og
samantekt, sem öll eru dags. 19. nóvember 2012, og skal skoðast sem ein heild. 
 
 
 
Lýsingu þessari má ekki dreifa eða miðla á nokkurn hátt til landa eða í löndum
þar sem birting krefst frekari skráningaraðgerða eða annarra aðgerða en þeirra
sem íslensk lög og reglugerðir krefjast eða þar sem slíkt bryti í bága við lög
eða reglugerðir í viðkomandi landi. Lýsingunni skal hvorki dreifa né senda í
pósti, með einum eða öðrum hætti til eða innan Bandaríkjanna, Ástralíu, Kanada
eða Japan. Fjarskipti hf., Framtakssjóður Íslands slhf. og Íslandsbanki hf. eru
ekki skaðabótaskyld vegna dreifingar þriðja aðila á lýsingunni. 
 
 
 
Lýsinguna má undir engum kringumstæðum skoða eða túlka sem loforð um árangur í
rekstri eða um ávöxtun fjármuna af hálfu Fjarskipta hf., Íslandsbanka hf. sem
umsjónaraðila eða annarra aðila. Hver sá sem hyggst taka þátt í útboðinu á
hlutum í Fjarskiptum hf. er hvattur til að kynna sér lýsinguna ítarlega. 

Fyrirvari þessi er gerður í samræmi 2. tl .29. gr. reglugerðar
framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins 809/2004 frá 29. apríl 2004. 
 
 
 Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér efni lýsingar Fjarskipta hf. í heild
sinni. Fjárfestar eru hvattir til að byggja mat sitt á Fjarskiptum hf. á þeim
upplýsingum sem fram koma í lýsingunni en ekki á þeirri stuttu samantekt sem
kynningin er. Fjárfesting í hlutabréfum felur í sér margvíslega áhættuþætti.
Áður en tekin er ákvörðun um fjárfestingu í hlutabréfum Fjarskipta hf. ættu
fjárfestar að kynna sér allar upplýsingar sem koma fram í lýsingunni, og er
sérstaklega bent á kafla sem bera heitið Áhættuþættir. Þeir óvissu- og
áhættuþættir sem fjallað er um þar eru þess eðlis að þeir geta haft áhrif á
Fjarskipti hf. og þar með á verð á hlutum í Fjarskiptum hf. Ef eitthvað af
þessum áhættuþáttum koma fram kann það að leiða til þess að verð á hlutum í
Fjarskiptum hf. falli og fjárfestar tapi fjárfestingu sinni, að hluta eða í
heild. Aðrir áhættu- og óvissuþættir gætu einnig haft neikvæð áhrif á starfsemi
Fjarskipta hf. og/eða verðmæti verðbréfa sem Fjarskipti hf. gefur út, til að
mynda þættir sem ekki eru til staðar á þessari stundu, eða sem ekki eru taldir
skipta verulegu máli eins og er, eða sem Fjarskiptum hf. er ekki kunnugt um.