|
|||
![]() |
|||
2015-04-29 12:41:41 CEST 2015-04-29 12:42:41 CEST REGLERAD INFORMATION Nýherji hf. - ÁrsreikningurUppgjör Nýjerja á fyrsta ársfjórðungi 201541 mkr heildarhagnaður á fyrsta ársfjórðungi 2015 Rekstur samstæðunnar gekk vel á fyrsta ársfjórðungi og öll félög samstæðunnar skiluðu hagnaði Nýherji kynnti í dag uppgjör á fyrsta ársfjórðungi 2015. Heildarhagnaður nam 41 mkr og tekjuvöxtur var 14,1% miðað við sama tímabil í fyrra. Helstu upplýsingar: -- Vöru- og þjónustusala á árinu nam 3.263 mkr [2014:2.859 mkr] -- Heildarhagnaður fyrsta ársfjórðungs nam 41 mkr [2014: 56 mkr] -- Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 114 mkr [2014: 86 mkr] -- EBITDA nam 225 mkr (6,9%) [2014:191 mkr (6,7%)] -- Rekstrarhagnaður nam 147 mkr [2014: 116 mkr] -- Framlegð nam 808 mkr (24,8%) [2014: 753 mkr (26,3%)] -- Jákvæð rekstrarafkoma var hjá öllum félögum samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi -- Tekjuvöxtur 14,1% frá sama tímabili í fyrra Finnur Oddsson, forstjóri: „Rekstur samstæðu Nýherja gekk vel á fyrsta ársfjórðungi og öll félög samstæðunnar skiluðu hagnaði. Samstæðan hefur nú skilað heilbrigðum hagnaði 5. ársfjórðunginn í röð, sem sýnir í reynd aukinn stöðugleika í rekstrinum. Töluverður tekjuvöxtur var frá sama tímabili í fyrra, sérstaklega hjá Nýherja og Tempo. Afkoma nú er lítillega yfir áætlunum. Við vinnum áfram að því að festa nýtt skipulag sem tók gildi síðasta haust í sessi og ná þeim markmiðum sem félagið setti sér um einfaldara skipulag, skilvirkara sölustarf og bætta þjónustu.“ |
|||
|