2013-08-30 16:20:32 CEST

2013-08-30 16:21:32 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Interim information (is)

Sex mánaða árshlutareikningur Hampiðjunnar 2013


Sex mánaða árshlutareikningur 2013

Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga.

  -- Rekstrartekjur jukust um 11% og voru 26,6 milljónir (23,9 milljónir).
  -- Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) var 4,6 milljónir (4,2 milljónir).
  -- Hlutdeild í afkomu HB Granda var 1,5 milljónir til tekna (158 þús. til
     gjalda).
  -- Hagnaður tímabilsins var 4,2 milljónir (2,2 milljónir).
  -- Heildareignir voru 87,6 milljónir (81,6 milljónir).
  -- Vaxtaberandi skuldir voru 24,5 milljónir (24,5 milljónir).
  -- Eiginfjárhlutfall var 60% (60%).



Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 26,6 milljónir og jukust um 11% frá fyrstu sex
mánuðum fyrra árs.  Tilkoma Nordsötrawl í samstæðuna skýrir söluaukninguna á
milli tímabilanna.  Rekstrarhagnaður var 13,6% af rekstrartekjum eða 3,6
milljónir en var 14% fyrir sama tímabil á fyrra ári, eða 3,3 milljónir. 

Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í tapi HB Granda, að frádregnum
fjármagnsgjöldum, voru ein milljón evra til tekna en var 622 þúsund til gjalda
fyrstu sex mánuðina á fyrra ári. 

Hagnaður tímabilsins var 4,2 milljónir en var 2,2 milljónir sama tímabil fyrra
árs. 



Efnahagur

Heildareignir voru 87,6 milljónir í lok tímabilsins.  Eigið fé nam 52,3
milljónum, en af þeirri upphæð eru 6,3 milljónir hlutdeild minnihluta í eigin
fé Swan Net Gundry á Írlandi, Nordsötrawl í Danmörku og Fjarðaneta á Íslandi. 
Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í lok júní 60%
af heildareignum samstæðunnar. 

Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 24,5 milljónum sem er sama fjárhæð og var í
byrjun ársins. 



Jón Guðmann Pétursson, forstjóri:

„Sala og afkoma samstæðunnar var góð fyrrihluta ársins.  Innkoma Nordsötrawl í
samstæðuna ásamt umskiptum til batnaðar í afkomu HB Granda vega þyngst í að
afkoma tímabilsins er betri en á sama tíma árið áður.  Seinni hluti ársins er
yfirleitt lakari hjá okkur en fyrri hlutinn og útlit fyrir að sú verði einnig
raunin á þessu ári.“ 



Reykjavík 30. ágúst 2013,
Hampiðjan hf.

Árshlutareikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf.,  www.hampidjan.is.