2015-08-27 15:00:00 CEST

2015-08-27 15:00:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Ársreikningur

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – júní 2015


Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - júní 2015 var
afgreiddur í borgarráði í dag fimmtudaginn 27. ágúst. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um 303
mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.141 mkr.
Rekstrarniðurstaðan er því 1.838 mkr lakari en gert var ráð fyrir.  Helstu
ástæður má rekja annars vegar til minni hagnaðar Orkuveitu Reykjavíkur vegna
gjaldfærslu gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum vegna
lækkandi álverðs og hins vegar til lakari afkomu A hluta heldur en áætlun gerði
ráð fyrir.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 6.885 mkr sem
er 232 mkr lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. 

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok
tímabils samtals 513.207 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 292.812
mkr og eigið fé nam 220.395 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 11.744 mkr. 
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 42,9% en var 43,1% um síðustu áramót. 

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 3.038 mkr en áætlun gerði ráð fyrir
að hún yrði neikvæð um 1.865 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því lakari en
gert var ráð fyrir, sem nemur 1.173 mkr.  Rekstrarniðurstaða fyrir
fjármagnsliði var neikvæð um 2.591 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri
niðurstöðu um 1.434 mkr eða 1.157 mkr lakari en áætlun gerði ráð fyrir.  
Lakari rekstrarniðurstaða skýrist meðal annars af lægri tekjum af sölu
byggingaréttar og sölu fasteigna eða 552 mkr undir áætlun og hækkun
launakostnaðar umfram áætlun um 403 mkr. 

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst
starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að
ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta
teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu
borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf.,
Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita
Reykjavíkur, Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk
Aflvaka hf og Jörundar ehf. 





Nánari upplýsingar veitir

Halldóra Káradóttir skrifstofustjóri Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar sími
664-7701.