2013-07-12 11:56:50 CEST

2013-07-12 11:57:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Tilboði í skuldabréf tekið


Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur - sveitarfélögin Reykjavíkurborg,
Akraneskaupstaður og Borgarbyggð - hafa nú allir staðfest þá ákvörðun stjórnar
OR frá 21. júní sl. að taka tilboði Landsbréfa hf. að fjárhæð 8,6 milljarðar
króna í skuldabréf í eigu fyrirtækisins. 

Skuldabréfið, sem var gefið út af Magma Energy Sweden A/B árið 2009, var hluti
greiðslu fyrir hlut OR í HS Orku, sem seldur var eftir að samkeppnisyfirvöld
settu eignarhaldi OR í fyrirtækinu skorður. Á bak við bréfið stendur veð í
hlutabréfum í HS Orku. Undirbúningur sölu skuldabréfsins hefur staðið frá í
ágúst 2012 að stjórn OR fól forstjóra að kanna möguleika á sölu þess. 

Salan þjónar þeim tilgangi að bæta lausafjárstöðu OR og að draga úr áhættu af
því að eiga svo mikla fjármuni í einu óskráðu skuldabréfi. 


Söluferli

23. ágúst 2012 fól stjórn OR forstjóra að kanna möguleika á sölu. Straumi
fjárfestingabanka var falið að annast söluferlið eftir verðkannanir. 

15. febrúar 2013 voru framkomin tilboð rædd í stjórn OR. Tvö óháð verðmöt voru
gerð á skuldabréfinu 

22. mars 2013 fól stjórn OR forstjóra að ganga til viðræðna við Landsbréf hf.

21. júní 2013 samþykkti stjórn OR, með fyrirvara um staðfestingu eigenda, að
taka tilboði Landsbréfa. 

11. júlí 2013 hafa allir eigendur staðfest ákvörðun stjórnar.