2014-06-03 15:43:36 CEST

2014-06-03 15:44:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Fyrirtækjafréttir

Nýherji selur rekstur tækjaleigu félagsins


Nýherji hf. hefur gengið frá sölu á starfsemi Tækjaleigu Nýherja til Sonik
Tækni ehf., sem tekur yfir reksturinn þann 15. júní nk. Kaupverð er trúnaðarmál
en salan hefur óveruleg áhrif á rekstrarniðurstöðu Nýherja á árinu. 

Tækjaleiga Nýherja hefur um árabil sérhæft sig í tækniþjónustu við hvers konar
viðburði, t.a.m. tónleika, ráðstefnur, o.fl. Leigan hefur boðið upp á afar
vönduð vörumerki, svo sem Yamaha og L-Acoustics. Nýherji mun áfram annast sölu
á viðkomandi vörumerkjum og annast rekstur á miðlægum tölvubúnaði fyrir Sonik
Tækni (streymiþjónusta, leigukerfi o.fl). 

„Nýherji hefur að undanförnu unnið að endurskilgreiningu á megináherslum
félagsins sem fela í sér skarpari sýn á starfsemina. Salan á Tækjaleigunni til
Sonik Tækni er í takt við nýjar áherslur Nýherja, sem er að efla þjónustu- og
lausnaframboð í upplýsingatækni fyrir íslensk fyrirtæki. Við væntum þess að
starfsemi Sonik Tækni muni vaxa og dafna á næstu misserum og hlökkum til góðs
samstarfs í sameiginlegum verkefnum“ segir Finnur Oddsson forstjóri Nýherja. 



Nánari upplýsingar:
Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, í síma +354 862 0310.