2010-08-20 13:46:13 CEST

2010-08-20 13:47:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 og RIKS 21 0414


Útboð á nýjum flokki óverðtryggðra ríkisbréfa, RIKB 12 0824 og verðtryggðum
flokki RIKS 21 0414 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu
var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta
verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 21 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.247 m.kr. að nafnverði. 17
tilboðum var tekið fyrir 6.347 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,09 (4,20%
ávöxtunarkröfu). 

RIKS 21 0414:
Alls bárust 29 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.604 m.kr. að nafnverði. 26
tilboðum var tekið fyrir 7.304 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,99 (3,35%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24.
ágúst. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 25. ágúst 2010.