|
|||
2024-06-06 19:18:32 CEST 2024-06-06 19:18:32 CEST REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - InnherjaupplýsingarREITIR: Fjárfest fyrir 3,4 ma.kr. í verslunar-, iðnaðar- og dagdvalarhúsnæðiKaup á Njarðarvöllum 4 í Reykjanesbæ og Lónsbraut 1 í Hafnarfirði Reitir og Kjölur fasteignir hafa undirritað samkomulag um kaup Reita á fasteignum að Njarðarvöllum 4 í Reykjanesbæ og Lónsbraut 1 í Hafnarfirði. Húsið að Njarðarvöllum 4 var byggt 2008 og er 2.338 fm. að stærð. Fasteignin hýsir Nesvelli dagvöl aldraðra í Reykjanesbæ. Leigusamningur er við Reykjanesbæ til 2038. Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita: Lónsbraut 1 Hafnarfirði var byggð 2011 og er 1.725 fm. að stærð. Fasteignin hýsir fiskvinnslu Hólmaskers ehf. sem er dótturfélag Vinnslustöðvarinnar. Leigusamningur er til 2033. Heildarvirði þessara tveggja fasteigna er 2.200 m.kr. og verða kaupin fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Leigutekjur á ársgrunni nema rúmlega 160 m.kr. Kaupin leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 145 m.kr. á ársgrundvelli. Áætlað er að afhending eignanna eigi sér stað eigi síðar en 1. ágúst n.k. Afhending mun fara fram þegar fyrirvörum um viðskiptin hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður hefðbundinna áreiðanleikakannana, afléttingu forkaupsréttar að Lónsbraut 1 og samþykki stjórnar Reita fasteignafélags hf. fyrir kaupunum. Kaup Reita á ÞEJ fasteignum ehf. Reitir hafa einnig gengið frá kaupum á ÞEJ fasteignum ehf., félagi sem á tæplega 3.100 fm. verslunarhúsnæðis við Fákafen 11, Faxafen 12, Skólavörðustíg 10, Laugaveg 32 og Laugaveg 86-94. Húsnæðið hýsir ýmsa leigutaka, þ. á m. veitingastaðinn Saffran. Heildarvirði er 1.150 m.kr. og eru kaupin að fullu fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Leigutekjur á ársgrunni nema rúmlega 110 m.kr. Kaupin leiða til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 85 m.kr. á ársgrundvelli. Afhending eignanna fór fram síðastliðin mánaðamót. Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 og á gudni@reitir.is og Kristófer Þór Pálsson, framkv.stj. Fjárfestinga og greiningar í síma 659 1700 og á kristofer@reitir.is. Um Reiti fasteignafélag |
|||
|