|
|||
2009-09-21 18:33:57 CEST 2009-09-21 18:34:57 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir- Fundur með kröfuhöfum 22. september nk.FUNDARBOÐ Varðar: Auglýsing um fund með kröfuhöfum Sparisjóðs Mýrasýslu þann 22. september næstkomandi. Sparisjóði Mýrasýslu, kt. 610269-5409, með lögheimili að Digranesgötu 2, 310 Borgarnes, var með ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hinn 2. júlí 2009 skipuð bráðabirgðastjórn, með vísan til ákvæða laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 með síðari breytingum. Bráðabirgðastjórn fer með sömu heimildir að lögum og samþykktum sparisjóðsins sem stjórn og fundur stofnfjáreigenda sparisjóðsins hefði ella haft á hendi. Á meðan bráðabirgðastjórn ræður yfir sparisjóðnum gilda sömu takmarkanir á heimildum til að beita fullnustugerðum og öðrum þvingunarúrræðum gagnvart honum og ef sparisjóðurinn hefði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Yfirráðum bráðabirgðastjórnar yfir SPM lýkur 2. október n.k., nema bráðabirgðastjórn hafi þá lagt fyrir héraðsdóm kröfu um að sjóðurinn verði tekinn til slita, honum veitt heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamninga, eða ný stjórn hafi verið kjörin til að leysa bráðabirgðastjórn af hólmi, sbr. 1. - 3. tl. 100. gr. a laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 með síðari breytingum. Fundur með kröfuhöfum Sparisjóðs Mýrasýslu verður haldinn þriðjudaginn 22. september 2009 kl. 15:00 að Hilton Hotel Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Á fundinum verður fjallað um núverandi stöðu sparisjóðsins. Þá verður á fundinum leitað eftir meðmælum kröfuhafa með frumvarpi að nauðasamningi, sem öllum þekktum kröfuhöfum hefur áður verið kynnt. Ef nægilegur fjöldi kröfuhafa veitir meðmæli með nauðasamningsumleitunum hyggst bráðabirgðastjórn senda formlega beiðni til héraðsdóms, fyrir 2. október n.k., um heimild til að leita nauðasamnings. Ella telur bráðabirgðastjórn að henni beri að vísa málefnum SPM til Fjármálaeftirlitsins til ákvörðunartöku. Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem sem eiga kröfu á sparisjóðinn. Bráðabirgðastjórn óskar eftir því að fulltrúar kröfuhafa, sem hyggjast mæta á kröfuhafafundinn, skrái sig fyrirfram þar sem það getur flýtt fyrir bókun fundarins. Skráningu má senda í tölvupósti til formanns. Netfang hans er sarnalds@bifrost.is. Jafnframt óskar bráðabirgðastjórn eftir því að fyrirspurnir, sem fulltrúar kröfuhafa óska eftir umfjöllun um á fundinum, verði sendar fyrirfram, sé þess kostur, þar sem það getur gert umfjöllun á fundinum markvissari. Fyrirspurnir má senda í tölvupósti til formanns. Netfang hans er sarnalds@bifrost.is. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu sparisjóðsins www.spm.is. |
|||
|