2011-09-05 14:16:59 CEST

2011-09-05 14:17:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group hf. gerir samning um viðskiptavakt við MP Banka


Icelandair Group hf (ICEAIR) hefur gert samning við MP Banka um viðskiptavakt á
útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic. Samningurinn
tekur gildi frá og með 6. september 2011 og er hann ótímabundinn en
uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara. Tilgangur samningsins er að efla
viðskipti með hlutabréf ICEAIR í NASDAQ OMX Nordic í því skyni að markaðsverð
skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. 


MP Banki mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í
hlutafé ICEAIR, að lágmarki kr. 2.000.000 að nafnvirði á gengi sem MP Banki
ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera
meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Breytist
verð ICEAIR innan dagsins um meira en 10% er MP Banka heimilt að tvöfalda
hámarks mun á kaup- og sölutilboðum það sem eftir er dagsins. Tilboðin skulu
endurnýjuð innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksfjárhæð
viðskipta dag hvern sem MP Banki er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal
vera kr. 80.000.000, að markaðsvirði.