|
|||
2009-03-31 16:05:13 CEST 2009-03-31 16:06:14 CEST REGULATED INFORMATION Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Ársreikningur- Afkoma ICEQ verðbréfasjóðs á árinu 2008Framsetning ársreiknings ICEQ verðbréfasjóðs er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. • Tap varð af rekstri sjóðsins á árinu 2008 að fjárhæð 1.924 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi og er tapið fært til lækkunar á hlutdeildarskírteinum ICEQ verðbréfasjóðs. • Eigið fé sjóðsins í lok árs 2008 nam 77 m.kr. skv. efnahagsreikningi. • Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG hf. sem telur að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2008, efnahagi hans 31. desember 2008 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2008, í samræmi við lög um ársreikninga. Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili ICEQ verðbréfasjóðs, nam þann 31. desember 2008 1.244 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall, sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, er 16,6% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Nýja Kaupþings banka hf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag í móttöku Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, Reykjavík. Nánari upplýsingar um ársreikning ICEQ verðbréfasjóðs og Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. veitir Sigþór Jónsson, sjóðsstjóri, í síma 444 6000. |
|||
|