|
|||
2013-03-08 14:57:18 CET 2013-03-08 14:58:20 CET REGULATED INFORMATION Reitir II - ÁrsreikningurAfkoma Reita II á árinu 2012Tap Reita II ehf. á árinu 2012 nam 1.929 milljónum króna samanborið við 1.321 milljón króna tap á árinu áður. Rekstrarhagnaður félagsins á árinu var 1.158 milljónir króna samanborið við 1.061 milljón króna á árinu 2011. Neikvæð afkoma orsakast að miklu leyti af matsbreytingu fjárferstingareigna en mat á fjárfestingareignum félagsins lækkaði um 1.138 milljónir í árslok 2012. Móðurfélag Reita II ehf., Reitir fasteignafélag hf., hyggur á skráningu í Kauphöll á árinu 2013 í kjölfar endurfjármögnunar á hluta skulda samstæðunnar. Lykiltölur: -- Heildareignir námu 19.660 milljónum króna þann 31. desember 2012 sem er lækkun um 1.189 milljónir króna frá árslokum 2011. -- Eigið fé félagsins er neikvætt um 27 milljónir króna í lok ársins. -- Rekstrartekjur ársins námu námu 1.671 milljónum króna samanborið við 1.617 milljónir króna árið áður. Reitir II á og rekur 18 fasteignir á Íslandi og er félagið eitt af 7 dótturfélögum í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. í árslok 2012. Upplýsingar um afkomu samstæðunnar, Reita fasteignafélags, má finna á www.reitir.is. Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 5. apríl 2013. Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita, í síma 575 9000 og netfanginu einar@reitir.is. |
|||
|