2013-09-26 17:08:00 CEST

2013-09-26 17:09:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. undirritar kaupsamning við fasteignafélag


Þann 14. febrúar s.l. sendi Reginn, frá sér tilkynningu  um samkomulag um leigu
og samþykki á tilboðum um kaup á fjórum fasteignafélögum með fyrirvörum. 

Þegar hefur verið tilkynnt  um kaup á þrem af fjórum fasteignafélögunum.

Undirritaður var kaupsamningur milli Regins og Vist ehf.  í dag, 26. september
og hefur þá verið gengið frá kaupum á öllum fasteignafélögum sem var getið í
fyrrnefndri tilkynningu.  Fasteignir Vist eru Ármúli 4 og 6 í Reykjavík,
Kaupvangur 3b, Fljótdalshéraði, auk hluta í Austurveg 10, lóð við Austurveg 8a,
Árborg og Hafnarstræti 1, Ísafirði. Stærð eignarhlutar fasteigna félagsins er
um 4.200 m2. 

Kaup þessi fylgja fjárfestingastefnu Regins sem felur í sér að auka hlut
félagsins í skrifstofuhúsnæði. 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262