2013-09-26 18:23:52 CEST

2013-09-26 18:24:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eyrir Invest hf. - Fyrirtækjafréttir

Eyrir Invest - Uppgreiðsla EYRI 11 1


Eyrir Invest hf. greiðir upp allan skuldabréfaflokkinn EYRI 11 1.  Uppgreiðsla
til  vörsluaðila samkvæmt upplýsingum frá Verðbréfaskráningu Íslands mun fara
fram þann 30. september 2013, þar sem höfuðstóll og áfallnir vextir verða
greiddir að fullu.  Uppgreiðsla fer fram í samræmi við heimild í skilmálum
flokksins. 

Eyrir Invest hefur greitt allar aðrar skammtímaskuldbindingar og er nú að fullu
langtímafjármagnað.   Hluti af uppgreiðslum annarra skulda var háð heimild frá
Seðlabanka Íslands til að greiða upp erlendar skammtímaskuldbindingar fyrir
lokagjalddaga.  Sú heimild hefur nú fengist. 

Að lokinni uppgreiðslu á EYRI 11 1 mun Eyrir Invest óska eftir afskráningu
skuldabréfaflokksins úr kauphöll og Verðbréfaskráningu Íslands. 

H.F. Verðbréf  annast umsjón uppgreiðslunnar.

Reykjavík, 26. september 2013

Frekari upplýsingar:

Andri Guðmundsson, H.F. Verðbréfum
Sími: 585 1700