2010-01-04 11:21:35 CET

2010-01-04 11:22:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
RARIK ohf. - Fyrirtækjafréttir

- Breyting á verðskrá RARIK 1. janúar 2010


Verðskrá RARIK fyrir dreifingu á raforku hækkar um 10% að jafnaði hinn 1.
janúar 2010. Þá hækkar virðisaukaskattur á almenna raforkunotkun úr 24,5% í
25,5%. 

Hækkun RARIK er svolítið mismunandi eftir verðskrárliðum og er hækkunin heldur
minni hjá stærri notendum en hjá smærri notendum. Hækkunin er fyrst og fremst
tilkomin vegna verðlagshækkana, hækkana á aðföngum og gengisþróunar. Þrátt
fyrir þessa hækkun verðskrár fullnýtir RARIK sér ekki þær tekjuheimildir sem
fyrirtækið hefur skv. lögum. Hjá þeim viðskiptavinum sem njóta niðurgreiðslna
úr ríkissjóði verður hækkunin meiri, þar sem niðurgreiðslur, sem ákvarðaðar eru
í fjárlögum, hafa ekki verið auknar undanfarin ár. 

Þannig mun reikningur fyrir dreifingu raforku til heimila á hitaveitusvæðum í
þéttbýli sem nota 4.000 kWst á ári hækka um 11% eða um 350 krónur á mánuði.
Dreifingarkostnaður til heimila í dreifbýli sem eru með niðurgreidda rafhitun
og nota 40.000 kWst á ári hækkar um 2.350 krónur á mánuði, eða 21%. 

Við gengisfall krónunnar á árunum 2008 og 2009 urðu öll aðföng dýrari vegna
endurnýjunar og reksturs rafdreifikerfa. Erlend lán stórhækkuðu einnig og ekki
útlit fyrir að þau lækki í bráð, en slík lán nema um 40% af langtímalánum
fyrirtækisins. Þetta varð til þess að RARIK tókst ekki að uppfylla öll ákvæði
sumra lánasamninga, sem við það komust í uppnám. Á árinu 2009 var því gripið
til verulegs niðurskurðar í rekstrarkostnaði og fjárfestingum m.a. til að ná að
uppfylla ákvæði lánasamninga. Nú er ljóst að þessi ákvæði verða uppfyllt vegna
ársins 2009 og náðst hefur samkomulag við lánardrottna um lánasamningana. 

Ráðstafanir til lækkunar rekstrarkostnaðar sem RARIK hefur gripið til eru meðal
annars lækkun launakostnaðar og niðurskurður í aðkeyptri vinnu og þjónustu.
Gerðir voru samningar við starfsmenn fyrirtækisins um lækkun á launum eða
tekjum og þannig komist hjá uppsögnum starfsmanna. Almenn skerðing
launakostnaðar var nálægt 100 Mkr, sem samsvarar um 6% af heildarlaunum, mest
hjá þeim sem hæst hafa launin. Lækkun annars kostnaðar var samanlagt um 150-200
Mkr. Beitt var aðhaldi á öllum sviðum rekstrar og sérstaklega dregið úr
fjárfestingum þar sem aðkeypt aðföng og verktakavinna var stór hluti verksins. 

Stjórn RARIK hefur nú samþykkt aðhaldssama rekstraráætlun fyrir árið 2010. Gert
er því ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði óbreyttur í krónutölu frá árinu
2008, þegar orkuflutningur og töp í dreifikerfinu eru undanskilin. Það er sami
rekstrarkostnaður og gert var ráð fyrir í áætlun fyrir árið 2009. Þetta
samsvarar um 20% lækkun almenns rekstrarkostnaðar á milli áranna 2008 og 2009 á
föstu verðlagi og lækkun milli áranna 2009 og 2010 sem nemur verðlagshækkunum.
Þessar ráðstafanir ásamt hækkun gjaldskrár tryggja að afkoma fyrirtækisins
verði með þeim hætti að ákvæði lánasamninga verði uppfyllt.