2014-12-05 17:06:36 CET

2014-12-05 17:07:38 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Cosmos A/S, dótturfyrirtæki Hampiðjunnar kaupir netaverkstæðið Herman Tomsens Vod- og Trawlbinderi ApS


Cosmos A/S, sem er dótturfyrirtæki í 100% eigu Hampiðjunnar hf.,  hefur  keypt
netaverkstæðið Herman Tomsens Vod- og Trawlbinderi ApS í Strandby á Jótlandi í
Danmörku.   Kaupverðið er DKK 1,5 milljónir ásamt árangurstengdum greiðslum sem
væntanlega koma til með að liggja á bilinu DKK 0,2-0,4 milljónir. 



Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar:

Þessi kaup styrkja enn frekar stöðu Hampiðjan Group á danska
veiðarfæramarkaðinum, sérstaklega á austurströnd Jótlands.   Við erum nú með 4
netaverkstæði í Danmörku og getum því veitt breiðum hópi viðskiptavina þjónustu
í þeirra heimahöfn.