|
|||
![]() |
|||
2013-08-13 13:07:38 CEST 2013-08-13 13:08:39 CEST REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - HluthafafundirHluthafafundur í Tryggingamiðstöðinni 20. ágúst 2013 – endanleg dagskrá og tillögurEndanleg dagskrá hluthafafundar í Tryggingamiðstöðinni hf. sem haldinn verður þriðjudaginn 20. ágúst 2013 kl. 16.00 á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, í sal I á 2. hæð, verður sem hér segir: 1. Tillaga um breytingar á 12., 13., 14., 15., 16. og 19. gr. samþykkta félagsins. 2. Kjör nýrrar stjórnar í samræmi við samþykktir félagsins að teknu tilliti til þeirra breytinga sem lagt er til að gerðar verði á 19. gr. samþykktanna. 3. Lögð fram tillaga um heimild stjórnar til kaupa á hlutum í félaginu á næstu fimm árum þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum fullnægðum, allt að 10% af hlutafé þess. Endurgjald fyrir keypta hluti skal miðast við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en samningur er gerður. 4. Önnur mál löglega upp borin. Tillögur sem teknar verða til meðferðar á hluthafafundinum má finna á vefsíðu félagsins (www.tm.is/fjarfestar). Eigi síðar en tveimur dögum fyrir fund verða einnig aðgengilegar með sama hætti upplýsingar um framboð til stjórnar. |
|||
|