|
|||
2010-01-22 15:45:00 CET 2010-01-22 16:12:45 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 11 0722: Alls bárust 18 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.300 m.kr. að nafnverði. Öllum tilboðum var hafnað. RIKB 25 0612: Alls bárust 38 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.175 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 8.300 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,30 (8,07% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 26. janúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 27. janúar 2010. |
|||
|