|
|||
2014-04-30 18:12:22 CEST 2014-04-30 18:12:51 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. fær lánshæfismatið BB+/B með stöðugum horfum frá S&P+------------------------------------------------------------------------------+ |Íslandsbanki er í traustri stöðu á íslenskum fjármálamarkaði með 30-40% | |markaðshlutdeild á flestum sviðum, þrátt fyrir að vera með minnsta | |efnahagsreikninginn af viðskiptabönkunum þremur. Þetta kemur fram í | |lánshæfismati fyrir Íslandsbanka sem Standard & Poor's birti í dag. | | | |Fyrirtækið gefur Íslandsbanka lánshæfiseinkunnina BB+ með stöðugum horfum sem | |er góð niðurstaða þegar horft er til lánshæfismats íslenska ríkisins, en | |einkunnin er aðeins einu þrepi frá íslenska ríkinu. | | | |Í lánshæfismati S&P kemur fram að fyrirtækið telji tekjudreifingu Íslandsbanka| |góða þar sem tveir þriðju hluti tekna séu vaxtatekjur og að aðrar tekjur séu | |vel dreifðar á milli tekjusviða. Í matinu kemur enn fremur fram að yfirtökur á| |árunum 2011 til 2012 hafi styrkt bæði stöðu bankans og afstöðu S&P til stefnu | |og yfirstjórnar hans. | | | |S&P segir Íslandsbanka vera vel í stakk búinn fyrir afléttingu gjaldeyrishafta| |þar sem bankinn sé vel fjármagnaður og með sterka lausafjárstöðu. Þá er | |skuldsetningarhlutfall bankans einstaklega gott í alþjóðlegum samanburði. | | | |Í mati S&P kemur fram að bankinn hafi náð góðum árangri í endurskipulagningu | |lána og að markmið næstu ára séu áfram metnaðarfull. Í lok árs 2013 hafi | |hlutfall lána í endurskipulagningu (LPA) hjá bankanum verið 8,3% en meðaltal | |viðskiptabankanna þriggja var 12,5%. | | | |Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: | | | |"Við erum sátt við þessa niðurstöðu sérstaklega í ljósi þess að | |lánshæfiseinkunnin er aðeins einu þrepi frá einkunn íslenska ríkisins. Þess er| |þó ekki að vænta að lánshæfismat íslenskra banka hækki frekar fyrr en að mat á| |lánshæfi íslenska ríkisins batnar. Það er mikilvægt verkefni sem allir | |hagsmunaaðilar verða að vinna að í sameiningu. | | | |Þessi niðurstaða S&P er viðurkenning á því að sú stefna undanfarinna ára hefur| |skilað árangri. Íslandsbanki er í dag vel fjármagnaður en lánshæfismatið mun | |auðvelda aðgengi okkar að erlendum fjármálamörkuðum enn frekar og gera okkur | |betur í stakk búin til að styðja við viðskiptavini okkar sem stunda alþjóðleg | |viðskipti og þarfnast fjármögnunar í erlendri mynt. Þannig uppfyllum við best | |hlutverk bankans, að veita fjármagni til fjárfestinga og uppbyggingar í | |íslensku atvinnulífi." | | | | | |Nánari upplýsingar veita: | | | | * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma | | 440 3187. | | * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í | | síma 440 3925. | | | | | +------------------------------------------------------------------------------+ [HUG#1781823] |
|||
|