2014-04-03 00:22:41 CEST

2014-04-03 00:23:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Islandsbanki hf. : Aðalfundur


Aðalfundur Íslandsbanka var haldinn í dag, miðvikudaginn 2. apríl. Friðrik
Sophusson, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og Birna Einarsdóttir,
bankastjóri, fór yfir uppgjör bankans og helstu þætti í starfsemi hans á árinu
2013. Samhliða var gefin út Ársskýrsla fyrir árið 2013.

Helstu niðurstöður Aðalfundar

Engar breytingar voru á aðalstjórn bankans frá fyrra ári, en varamönnum var
fjölgað um einn og tók þar sæti Svana Helen Björnsdóttir. Þá samþykkti fundurinn
að greiða 4,0 milljarða króna í arð til hluthafa bankans vegna rekstrarársins
2013. Á fundinum var einnig samþykkt að Deloitte ehf. verði endurskoðunarfélag
bankans til eins árs. Engin breyting var gerð á þóknunum til stjórnarmanna á
aðalfundinum og þá var samþykkt að starfskjarastefna bankans yrði óbreytt frá
fyrra ári.

Hægt er að nálgast Ársskýrslu, Áhættuskýrslu og önnur gögn á vef
fjárfestatengsla Íslandsbanka, www.islandsbanki.is/ir.



Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1774016]