2019-07-22 18:30:00 CEST

2019-07-22 18:30:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í júní 2019


Samsett hlutfall* var 94,8% í júní en það var 97,0% í júní 2018. Samsett hlutfall það sem af er ári er 99,1% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 96,8%.

Ávöxtun fjárfestingaeigna VÍS í júní var 0,2% en ávöxtun frá áramótum er 8,2%.

VÍS greiddi viðskiptavinum sínum rúmlega 1,1 milljarð króna í tjónabætur** í júní og hefur greitt viðskiptavinum tæplega 8,2 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.

*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingahluta sem hlutfall af iðgjöldum.

**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Þorvaldsson samskiptastjóri í síma 660 5252.