2008-05-15 11:32:35 CEST

2008-05-15 11:33:36 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Alfesca hf. - Ársreikningur

- Kynning á niðurstöðum þriðja ársfjórðungs verður miðvikudaginn 21. mars


Alfesca birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs fjárhagsársins 2007-08 (jan-mars
2008) 20. maí nk. eftir lokun markaða. 

Kynningarfundur fyrir fjárfesta, greiningaraðila og fjölmiðla verður haldinn
daginn eftir, og þar mun Xavier Govare, forstjóri félagsins fara yfir
uppgjörið. 

Dags: miðvikudagur 21. maí 2007
Staður: Grand hótel Reykjavík
Tími: kl. 16:00

Að fundi loknum fá gestir að smakka á nýjum vörum frá Alfesca svo sem kjöti,
fiski og rækjum sem eru sérstaklega ætluð fyrir grillveislur sumarsins. 
Vefvarp frá fundinum má nálgast á vefsíðu Alfesca, www.alfesca.com, við upphaf
fundarins. Afrit af kynningum má nálgast á vefsíðu félagsins að fundi loknum. 

Um Alfesca
Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem
fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur
lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar
skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins
eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia,
Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra
einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 616 milljónir Evra
og starfsmenn eru um 3,500. 


Alfesca er skráð í Norrænu OMX-kauphöllinni á Íslandi (OMXI: A). 

Upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com 

Nánari upplýsingar veita:
Antony Hovanessian     framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar    í síma 477 7000
Hrefna Ingólfsdóttir   forstöðumaður samskiptasviðs         í síma 477 7007

Fréttatilkynning þessi er birt á bæði ensku og íslensku. Ef um misræmi er að
ræða gildir enski textinn.