2024-06-18 10:30:00 CEST

2024-06-18 10:30:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nova Klúbburinn hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 24


Í 24. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.478.000 eigin hluti að kaupverði 13.189.770 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
11/06/2024 14:43:58 600.000 3.82 2.292.000
12/06/2024 11:08:03 985.000 3.78 3.723.300
13/06/2024 09:35:52 955.000 3.79 3.619.450
14/06/2024 10:05:36 938.000 3.79 3.555.020
Samtals   3.478.000   13.189.770

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 17.096.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 20.574.000 hluti, eða um 0,558% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 80.392.300 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is