|
|||
2016-12-29 16:06:04 CET 2016-12-29 16:06:04 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirEndurfjármögnun skulda milli Landsvirkjunar og LandsnetsLandsvirkjun og Landsnet hafa komist að samkomulagi um endurfjármögnun skulda á milli félaganna. Með samkomulaginu hefur Landsnet keypt til baka öll útistandandi skuldabréf Landsnets sem gefin voru út árið 2005 og voru í eigu Landsvirkjunar. Endurkaup Landsnets voru greidd að hluta með peningum og að hluta með nýjum lánssamningi milli félaganna í Bandaríkjadal með gjalddaga árið 2020. Íslandsbanki var ráðgjafi Landsvirkjunar og Landsnets við endurkaup skuldabréfanna og gerð lánssamnings. Reykjavík, 29. desember 2016 Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515 9000, netfang: rafnar@lv.is |
|||
|