|
|||
2016-12-29 16:11:07 CET 2016-12-29 16:11:07 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Landsnet hf. - FyrirtækjafréttirEndurfjármögnun skulda milli Landsnets og LandsvirkjunarLandsnet og Landsvirkjun hafa komist að samkomulagi um endurfjármögnun skulda á milli félaganna. Með samkomulaginu hefur Landsnet keypt til baka öll útistandandi skuldabréf Landsnets sem gefin voru út árið 2005 og voru í eigu Landsvirkjunar. Endurkaup Landsnets voru greidd að hluta með peningum og að hluta með nýjum lánssamningi milli félaganna í bandaríkjadal með gjalddaga árið 2020. Íslandsbanki var ráðgjafi Landsnets og Landsvirkjunar við endurkaup skuldabréfanna og gerð lánssamnings. Reykjavík, 29. desember 2016 Nánari upplýsingar gefur Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármála Landsnets, gudlaugs@landsnet.is eða í síma 563 9300. |
|||
|