|
|||
2009-11-17 16:35:25 CET 2009-11-17 16:36:25 CET REGULATED INFORMATION Hitaveita Suðurnesja - Fyrirtækjafréttir- Geysir Green Energy eignast meirihluta í HS OrkuGeysir Green Energy (Geysir), Reykjanesbær og kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation (Magma) hafa lokið viðskiptum vegna kaupa Geysis á 34% hlut í HS Orku af Reykjanesbæ. Ennfremur kaupir Magma 8,6% hlut í HS Orku af Geysi. Með sölunni lýkur fyrri áfanga af tveimur í sölu Geysis á alls 10,8% hlutafjár í HS Orku til Magma fyrir rúma þrjá milljarða króna sem félagið staðgreiðir og mun hafa áhrif til styrkingar á gengi krónunnar. Eftir sölu hlutarins í dag er Geysir eigandi 57,4% hlutafjár í HS Orku hf. en seinni áfangi viðskiptanna er sala á 2,2% hlut að auki til Magma í byrjun næsta árs. Að þeim viðskiptum loknum verður Geysir eigandi 55,2% hlutar í HS Orku. Kaup Magma á hlut í HS Orku koma í kjölfar samkomulags Reykjanesbæjar og Geysis um breytt eignarhald á HS Orku og HS Veitum. Með því samkomulagi eignaðist Geysir nær allan hlut Reykjanesbæjar í HS Orku en lét á móti hlut sinn í HS Veitum. Reykjanesbær á nú 66,75% hlut í HS Veitum og 0,75% hlut í HS Orku. Áður hefur Reykjanesbær keypt allar auðlindir HS Orku af félaginu og leigir því nýtingarréttinn, og tryggir þannig eignarhaldið á auðlindunum og að samfélagið njóti áfram arðs af nýtingu þeirra. „Viðskipti þessi eru grundvöllur þess að gera HS Orku kleift að sækja sér fjármagn til fyrirhugaðra framkvæmda við uppbyggingu gufuaflsvirkjana á Suðurnesjum. Vegna veikingar íslensku krónunnar hafa erlendar skuldir HS Orku hækkað umtalsvert. Þar af leiðandi hefur eiginfjárhlutfall félagsins lækkað niður fyrir þau lágmörk sem kveðið er á um í lánasamningum félagsins. Félagið hefur nú náð samkomulagi við tvo af þremur lánadrottnum sínum og samningar við þann þriðja eru á lokastigi,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis. Um Geysi Green Energy Geysir Green Energy er fyrirtæki á sviði sjálfbærrar orkuvinnslu. Geysir er með sterka stöðu í vinnslu jarðvarma á Íslandi, í Þýskalandi, Kína og á Filippseyjum og stefnir að því að efla íslenska orkustarfsemi enn frekar og nýta þekkingu sína erlendis þar sem tækifæri gefast. Helstu eignir Geysis nú, eftir sölu 8,6% hlutarins til Magma, eru 57,4% hlutur í HS Orku hf. og Jarðboranir hf. Geysir hefur einnig unnið með góðum árangri að uppbyggingu hitaveituverkefna í Kína auk jarðvarmaverkefna í Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Filippseyjum. Enex ehf. er dótturfélag Geysis. Meðal verkefna sem Enex lauk á síðasta ári var bygging 9,3 MW jarðvarmavirkjunar í El Salvador og er virkjunin nú í fullum rekstri. Þetta er fyrsta jarðvarmavirkjunin sem er að fullu hönnuð og byggð erlendis undir stjórn íslensks fyrirtækis. Geysir er einn af stofnaðilum Keilis, menntastofnunar á háskólastigi á Suðurnesjum. Nánari upplýsingar: Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysir Green Energy, sími 665 2055. |
|||
|