|
|||
2014-12-16 17:33:23 CET 2014-12-16 17:34:24 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboðiLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og LSS150434 þann 16. desember 2014. Alls bárust tilboð í LSS150224 að nafnvirði ISK 525.000.000 á bilinu 3,40% - 3,55%. Ákveðið var að afþakka öll tilboð í LSS150224 að þessu sinni. Útistandandi fyrir voru ISK 31.939.500.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 31.939.500.000. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 270.000.000 á bilinu 3,31% - 3,36%. Ákveðið var að afþakka öll tilboð í LSS150434 að þessu sinni. Útistandandi fyrir voru ISK 16.374.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 16.374.352.565. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson, Sími: 515 4947, e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|