2015-06-29 17:42:30 CEST

2015-06-29 17:43:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 26. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 250.000 eigin hluti fyrir 16
milljónir kr. eins og hér segir: 

Dagsetning  Tími   Keyptir hlutir  Viðskipta-verð       Kaup-     Eigin hlutir
                                                         verð  eftir viðskipti
------------------------------------------------------------------------------
23.6.2015   15:19         250.000              64  16.000.000          250.000
------------------------------------------------------------------------------
Samtals                   250.000                  16.000.000                 
------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 18. júní 2015. 

Reitir hafa nú keypt samtals 250.000 hluti í félaginu sem samsvarar 0,74% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 16 milljónum króna. Reitir eiga nú samtals
0,03% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en
þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og
viðauka við reglugerð nr. 630/2005.