2013-10-11 13:45:00 CEST

2013-10-11 13:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0115 og RIKV 14 0415


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0115 og RIKV 14 0415 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 0115:

Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.450 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 10.000 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,091 (flatir
vextir 3,59%). 

RIKV 14 0415:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.930 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 3.580 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,120 (flatir
vextir 3,79%).