|
|||
2010-08-30 12:10:29 CEST 2010-08-30 12:11:30 CEST REGULATED INFORMATION RARIK ohf. - ÁrsreikningurLeiðrétting - Árshlutareikningur RARIK ohf fyrstu sex mánuði ársins 2010 - Frétt birt 2010-08-30 12:01:40Leiðrétting: Fréttaflokki breytt. Árshlutareikningur RARIK ohf 1. janúar til 30. júní 2010 var samþykktur af stjórn þann 27. ágúst. Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2010 var 785 milljónir króna sem er í samræmi við áætlanir samstæðunnar. Rekstrarafkoman var betri en á fyrri hluta ársins 2009. Rekstrartekjur hækkuðu um tæplega 12,5% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um rúmlega 10,5% og var regluleg starfsemi fyrirtækisins í samræmi við áætlanir. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 248 milljónir króna á tímabilinu en voru á sama tímabili árið áður neikvæðir um 875 milljónir króna. Þessi breyting stafar fyrst og fremst af styrkingu krónunnar, sem ekki var gert ráð fyrir í áætlunum. Áhrif hlutdeildarfélags á rekstur voru jákvæð um 233 milljónir króna. Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu var hagnaður á tímabilinu 1.080 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 1.356 milljónir króna eða 29% af veltu tímabilsins, samanborið við 1.166 milljónir eða 28,1% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri var 1.566 milljónir króna. Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2010 voru heildareignir RARIK 35.736 milljónir króna og heildarskuldir námu 18.674 milljónum króna. Eigið fé var 17.062 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 47,7%. Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna. Helstu stærðir úr rekstri: sjá viðhengi Horfur í rekstri RARIK á árinu 2010 eru góðar, en heildarafkoman á næstu tímabilum ræðst hins vegar að verulegu leyti af þróun á gengi krónunnar og almennu ástandi efnahagsmála. Á tímabilinu var lokið við 3 milljarða innlent skuldabréfaútboð og unnið er að frekari fjármögnun félagsins til ársins 2012. Sú vinna er unnin í samstarfi við viðskiptabanka félagsins og gengur samkvæmt áætlun, en gert er ráð fyrir að öll vaxtaberandi lán verði í formi langtímalána í lok ársins. Árshlutareikningur RARIK 1. janúar til 30. júní 2010 var samþykktur á fundi stjórnar þann 27. ágúst 2010. Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000. |
|||
|