2017-10-11 20:16:48 CEST

2017-10-11 20:16:48 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Lykill fjármögnun hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Niðurstaða víxlaútboðs


Lykill fjármögnun hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki,
LYKILL180416. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 600 m.kr.
Heildareftirspurn í útboðinu nam 1.000 m.kr.

Víxlarnir voru seldir á 4,90% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta
er mánudagurinn 16. október 2017.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. höfðu umsjón með útboðinu.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 16. október 2017.

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840
4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is,
s:896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf.,
sighvatur@lykill.is, s:540 1700


[]